C.I.E. ISSHCH Standelbec Gabriella

 C.I.E. ISSHCH Standelbec Gabriella eða Gaby eins og hún er kölluð var innflutt frá UK í okt 2006 frá henni Becky Williams. Hún er fædd 26 maí 2005 og foreldrar hennar eru þau SH CH Golmas Governor JW og SH CH Xanthos Galadriel At Standelbec. Gabriella er HD-ED (A-A)FRI og DNA/PRA - normal, clear. Hún er búin með Hlýðni bronspróf 1.einkunn 171 stig af total 180  frá Hundaskólanum Okkar. Lauk retriever 1 námskeiði hjá Sigga Benna 2008 og hefur lokið skapgerðamati á vegum HRFÍ. Einnig er hún komin með titilinn INT Show Champion frá FCI.